Til sölu er skemma (fiskverkun) við Lágeyri 3, staðsett á hafnargarðinum á Sauðárkróki. Húsið var steypt árið 2011 og er 129,2 m2 að grunnfleti auk 24,2 m2 aðstöðu á millilofti. Að auki er innréttað 30 m2 milliloft Á báðum göflum er stór og lítil hurð. Eignin er fullfrágengin með góðri lofthæð. Nokkuð stór lóð fylgir húsinu, steypt og malbikuð að austan, malborin að vestan.
Á jarðhæð er vinnusalur, snyrting og geymsla. Á lofti er kaffistofa með eldhúskrók og geymsla.
Ásett verð 40 miljónir.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900