Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsinu við Skagfirðingabraut 23, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Fjögurra herbergja íbúð í steyptu tvíbýlishúsi, byggðu árið 1948. Birt stærð íbúðarinnar skv. Þjóðskrá Íslands er 92,8 fm. Leigulóð hússins alls er 480 fm.
Stutt er í skóla, íþróttasvæði, sundlaug og ýmsa þjónustu.
Að utan hefur húsið verið klætt og einangrað með steinull. Þak hefur verið endurnýjað.
Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, forstofu og hol.
Inngangur frá Skagfirðingabraut í flísalagða forstofu. Frá forstofu er parketlagður gangur og hol.
Við gang er eitt parketlagt herbergi og stofa.
Við hol eru tvö herbergi, eldhús og baðherbergi. Inn af eldhúsi er þvottahús.
Annað herbergið er parketlagt en hitt dúklagt.
Baðherbergi er flísalagt, hvít tæki, sturtuklefi og skápar.
Eldhús er dúklagt, hvít innrétting og viðarborðplata.
Þvottahús er flíslagt, vaskaborð, vegg hillur og útgangur til norðurs.
Ljósleiðari í íbúðinni.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali