Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Kambastíg 2A, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Um er að ræða tvær íbúðir á miðhæð og íbúð í kjallara í steyptu þríbýlishúsi byggðu árið 1927. Leigulóð hússins alls er 434 fm.
Birt heildarstærð íbúðanna er 137,7 fm. Íbúð á miðhæð er 66,9 fm. og íbúð í kjallara er 72,4 fm.
Báðar íbúðirnar eru með sérinngangi og eru í útleigu.
SKEMMTILEG EIGN Á GÓÐUM STAÐ SEM BÝÐUR UPP Á MIKLA MÖGULEIKA.
GÓÐ FJÁRFESTING.
Íbúð á 1. hæð er 66,9 fm og skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og forstofu.
Í eldhúsi var innrétting endurnýjuð í byrjun árs 2021 og nýtt parket lagt á íbúðina í janúar 2022.
Neysluvatnslagnir í eldhúsi og baðherbergi hafa verið endurnýjaðar.
Í kjallara er nýlega innréttuð 72,4 fm íbúð sem skiptist í tvö herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og forstofu.
Þak og þakrennur var endurnýjað fyrir einhverju árum. Frárennslislagnir hússins hafa verið endurnýjaðar út í brunn og settur nýr brunnur við lóðarmörk.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og aðstoðarmaður fasteignasala