Fasteignin við Ránarstíg 4, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Fjögurra herbergja, steypt einbýlishús á einni hæð alls 112,8 fm.
Íbúðarhúsið er byggt árið 1946 og er 90 fm. Bílskúrinn er byggður 1970 og er 22,8 fm.
Leigulóðin er 446 fm.
***Hægt að bóka skoðun samdægurs***
Húsið hefur verið klætt að utan.
Þakjárn var endurnýjað árið 2003. Loftaplata er steypt.
Íbúðin skiptist í 3 herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, geymslu/herbergi og gang.
Inngangur að norðan þar sem komið er í flísalagða forstofu. Útihurð nýleg.
Þar við er þvottahús og parketlögð geymsla sem nú er nýtt sem herbergi.
Þá er inngangur að vestan þar sem komið er í flísalagða forstofu við gang.
Eldhús er parketlagt. Hvít innrétting með ljósri borðplötu. Electrolux eldavél.
Stofa er parketlögð.
Baðherbergi er flísalagt. Hvít tæki, baðkar.
Herbergi eru þrjú og eitt með skápum.
Rafmagn hefur verið endurnýjað.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali