Einkunnarorð:

Heiðarleiki- Traust – Fagmennska

 

Samskipti við viðskiptavini:

Fasteignasala Sauðárkróks ehf. leggur áherslu á góð samskipti við viðskiptavinina. Gerðar eru strangar kröfur til starfsfólks um hæfni, hlutleysi og málefnalega afstöðu í starfi. Starfsfólki er skylt að gera sér góða grein fyrir þeim þáttum sem geta haft áhrif á hæfni þeirra í starfi og upplýsa yfirmenn ef vafi leikur á því. Kröfur um hæfni eru settar til þess að tryggja öllum hlutaðeigandi upplýst viðskipti sem byggð eru á óhlutdrægni og einkunnarorðum Valfells.
Starfsfólki Fasteignasölu Sauðárkróks ehf., mökum þeirra og börnum, er ekki heimilt að stunda fasteignasölu í eigin nafni eða starfa hjá eða eiga aðild að öðrum fyrirtækjum sem stunda eða tengjast fasteignaviðskiptum með einhverjum hætti. Brot á þessu varða brottrekstri úr starfi.

 

Hæfi:

Starfsfólk Fasteignasölu Sauðárkróks er vanhæft til þess að eiga aðild að ákvörðunum um fasteignaviðskipti á vegum Fasteignasölu Sauðárkróks, ef það hefur persónulegra hagsmuna að gæta sem kynnu að brjóta í bága við einkunnarorð Fasteignasölu Sauðárkróks eða gegn hagsmunum viðskiptavina. Það sama gildir um ákvarðanir sem tengjast fjölskyldu- eða venslafólki starfsfólks Fasteignasölu Sauðárkróks.

 

Gjafir og önnur framlög:

Starfsfólk Fasteignasölu Sauðárkróks má ekki þiggja gjafir, þjónustu eða umboðslaun, eða veita slíku viðtöku fyrir aðra, ef hugsanlegt er að því sé ætlað að hafa áhrif, eða geti haft áhrif, á starfsemi Fasteignasölu Sauðárkróks eða frammistöðu starfsfólks.
Starfsfólki Fasteignasölu Sauðárkróks er óheimilt að þiggja sérstaka afslætti af vörum og þjónustu frá viðskiptavinum Fasteignasölu Sauðárkróks.

 

Þagnarskylda:

Starfsfólk Fasteignasölu Sauðárkróks er bundið þagnarskyldu um allt það sem það fær vitneskju um í starfi og ætla má að leynt eigi að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þess ber ætíð að gæta að trúnaðarupplýsingum og upplýsingum sem þagnarskylda hvílir á sé ekki miðlað til fleiri aðila en brýna nauðsyn ber til. Stjórnendur Fasteignasölu Sauðárkróks skulu setja reglur um það hverjir hafi aðgang að trúnaðarupplýsingum og hvernig þeir miðla slíkum upplýsingum. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

 

Samskipti við fjölmiðla:

Eigendur Fasteignasölu Sauðárkróks koma fram fyrir hönd fyrirtækisins. Starfsfólk Fasteignasölu Sauðárkróks má ekki tjá sig um málefni viðskiptavina, málefni fyrirtækisins eða fasteignamarkaðinn sérstaklega.

 

Staðfesting:

Starfsfólk Fasteignasölu Sauðárkróks staðfestir, með undirritun yfirlýsingar, að það hafi kynnt sér efni siðarreglna Fasteignasölu Sauðárkróks og skuldbindi sig til þess að hlíta siðareglunum og þeim viðurlögum sem varða brot á þeim.

 

Viðurlög:

Brot á siðarreglum Fasteignasölu Sauðárkróks varða tafalausri brottvikningu úr starfi. Stjórn Fasteignasölu Sauðárkróks ehf. ákveður viðurlög. Viðurlög fara eftir alvarleika brotsins og geta falist í áminningu eða varanlegum brottrekstri, nema lög kveði á um frekari málsmeðferð. Netfang eftirlitsnefndar félags fasteignasala er [email protected] telji viðskiptavinir sér þurfa frekari upplýsingar.