Fasteignin við Skagfirðingabraut 9, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Steypt einbýlishús á þremur hæðum (tvær hæðir auk ris) alls 136,9 fm. og byggt árið 1928.
Leigulóð hússins er 461,4 fm.Fasteignin skiptist í 5 svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús. 1. hæð:
Á hæðinni eru þrjú herbergi, gestasnyrting og þvottahús.Inngangur er austan við húsið. Þar er komið í flísalagða
forstofu.
Árið 2021 var
eitt herbergi hæðarinnar flotað, lagt nýtt parket, það málað og skipt um ofn.
Önnur herbergi á hæðinni eru lögð dúk og korkflísum.
Í
þvottahúsi er vinnuborð, vaksur, gott hillupláss og fatahengi.
Gestasnyting er með flísalögðu gólfi.
Stigi er teppalagður.
2. hæð:
Á hæðinni er eldhús, stofa og baðherbergi.Eldhús er með ljósri innréttingu og borðplötu. Vestfrost eldavél.
Stofa er parketlögð en með flísum á hluta. Gluggar snúa til suðurs og vesturs.
Baðherbergi er rúmgott og var endurnýjað árið 2023. Korkflísar eru á gólfi og Fibo-plötur á veggjum. Góð hvít innrétting er við vask og speglaskápur. Baðkar og sturtuklefi.
Ris:
Á hæðinni eru tvö herbergu, hol og geymsla undir súð. Herbergin eru bæði parketlögð.
Í
holi er timbur á gólfi. Holið nýtist núverandi eigendurm sem sjónvarpshol.
Gott
geymslurými undir súð.
Ljósleiðari hefur verið lagður í húsið.
Árið 2020 var húsið málað og skipt um þakrennur.
Garður að austan er afgirtur.
Hellulögð stétt með snjóbræðslu er austan við húsið.
Snjóbræðsla er í hlut af bílaplani.
Skipt var um glugga á neðstu hæð og risi og báðar hæðir einangraðar í kringum árið 2000
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali