Geitagerði 1, 551 Sauðárkrókur
35.000.000 Kr.
Fjölbýli
5 herb.
112 m2
35.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2003
Brunabótamat
47.000.000
Fasteignamat
22.300.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Geitagerði 1, Hólum í Hjaltadal, Skagafirði ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Vel skipulögð fimm herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi, steyptu árið 2003. Íbúðin er 112 fm. Leigulóð hússins alls er 948 fm.
Húsið er uppsteypt og einangrað að utan. Sérafnotaflötur er fyrir framan íbúðina 2,5 m. við suðvesturhlið.
Snyrtileg eign.


Að utan er húsið í góðu ástandi. 

Íbúðin skiptist í 4 svefnherbergi, eldhúskrók, stofu, baðherbergi, geymslu og þvottahús.
Gólf íbúðarinnar eru dúklögð nema forstofa og baðherbergi sem er flísalagt. Skápar eru í öllum fjórum herbergjum.
Gluggar í stofu snúa í vestur og svalahurð frá stofu og í garð framan við íbúðina.
Innrétting í eldhúsi er úr spónlagðri eik. Eldavél og uppþvottavél frá Siemens.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á vegg við sturtu og hvít tæki. Lofttúða á baðherbergi. Árið 2023 var skipt um blöndunartæki, sturtutæki og salerni, gólf og veggur við sturtu var flísalagt.
Þvottahús er rúmgott. Þar er vaskaborð og vaskur. Inn af þvotthúsi er lítil geymsla sem áður var snyrting. Allar lagnir fyrir vask og salerni eru því til staðar. 
Rúmgóð geymsla með góðu hilluplássi.
Nettenglar í öllum herbergjum.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.