Skagfirðingabraut 25 e.h., 550 Sauðárkrókur
58.000.000 Kr.
Fjölbýli
6 herb.
189 m2
58.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1948
Brunabótamat
83.750.000
Fasteignamat
47.650.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Skagfirðingabraut 25, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum. 
Fjögurra til fimm herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt viðbyggingu á tveimur hæðum og innbyggðum bílskúr.
Birt stærð fasteignarinnar skv. Þjóðskrá er alls 189,8 fm.
Húsið var steypt árið 1948 en byggt var við húsið til norðurs árið 1963. 
Fasteignin er vel staðsett og stutt í ýmsa þjónustu sem og skóla, íþróttasvæði, sundlaug o.fl.
Snyrtileg eign.


Að utan hefur húsið verið klætt og það einangrað. Húsið hefur verið klætt og einangrað að utan í kringum 1981.
Viðbygging til norðurs var klædd og einangruð árið 2016. Þá var jafnframt þak og þakefni hennar endurnýjað.
Þak hússins er gamalt og móða er á milli glerja í íbúðinni. Gler fyrir suður- og vesturhlið er til og fylgir.
Skipt hefur verið um tvo glugga í viðbyggingu. 
Snjóbræðsla í stétt og tröppum framan við húsið.
Bílastæði við bílskúr fylgir íbúðinni. 

Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, tvær stofur, rúmgott eldhús, baðherbergi, sjónvarpsherbergi, rúmgott þvottahús og bílskúr. 
Frá Skagfirðingabraut er gengið inn í sameiginlegan stigagang fyrir báðar íbúðir hússins. 
Dúklagður stigi upp á stigapall þar sem er fatahengi. 
Þaðan er komið inn á flísalagt hol.
Stofur hússins eru sunnan megin í húsinu með litlum steyptum svölum til suðurs. Nýlegt parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott. Á gólfi er hydro-korkur. Eldhúsinnrétting er máluð og með nýlegri borðplötu. Siemens eldavél og vifta.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2018, þ.e. gólf flísalagt, fíbóplötur settur á veggi, settur nýr sturtuklefi, handklæðaofn, ný hvít innrétting og tæki.
Herbergi eru öll parketlögð og skápar í einu herbergi. Parket er nýlegt.
Sjónvarpshol er flísalagt.
Mjög rúmgott og endurnýjað þvottahús er á neðri hæð. Ný innrétting með góðu skápaplássi og vaskaborði og flísar á gólfi. 
Útgangur frá þvottahúsi og í garð. Útihurð var endurnýjuð árið 2016.
Innangengt er frá íbúðinni í bílskúr. Rafknúin bílskúrshurð síðan 2018.
Geymsluloft er yfir allri íbúðinni.
Sameiginlega geymsla í kjallara hússins.

Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar.
Vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta. 
Miðstöðvarlagnir eru upprunalegar en skipt hefur verið um 6 ofna í íbúðinni. 

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.