Fasteignasala Sauðárkróks býður tils ölu íbúð á efri hæð í fasteigninni við Hólaveg 33, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Fjögurra herbergi íbúð ásamt bílskúr alls 120,8 fm.
Íbúðin er skráð 68,2 fm. en hún er í raun stærri þar sem stór hluti hennar er undir súð.
Bílskúrinn er skráður 52,3 fm. og skiptist í annars vegar stúdíóíbúð og geymslu.
Leigulóð hússins alls er 462 fm.
Fasteignin er vel staðsett en stutt er í ýmsa þjónustu á borð við verslun, skóla, yngri deild leikskóla, íþróttasvæði, sundlaug o.fl.Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, stofu, eldhús, þvottahús og forstofu.Komið er í flísalagða
forstofu með gólfhita og fatahengi.
Stigi er frá forstofu til íbúðar sem klæddur er kókosteppi.
Stigapallur og
gangur er parketlagt.
Herbergi eru öll parketlögð.Parket er á tveimur herbergjum og viðarparket á einu þeirra.
Í
eldhúsi eru korkflísar á gólfi, hvít innrétting með grárri borðplötu. Siemens helluborð og Elvita ofn. Korkflísarnar voru nýverið pússaðar upp og lakkaðar.
Stofa er parketlögð og snýr í suðaustur. Frá stofu er gengið út á svalir.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Á baðherbergi er baðkar.
Gott útsýni er frá íbúðinni.
Stúdíóíbúðin er staðsett í austurhluta bílskúrsins er
ósamþykkt og er í útleigu.
Eldhúskrókur er með nýlegri hvítri innréttingu og viðarborðplötu. Eldavél er frá AEG. Nýlegt harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með lítilli innréttingu við vask og sturtuklefa.
Nýr ofn er í bílskúr.
Í vesturhluta bílskúrs er dúklögð
geymsla. Bílaplan er malarborið.
Að utan þarfnast eignin sprunguviðgerða og málunnar.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali