Fasteignin Suðurvegur 12, Skagaströnd ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í raðhúsi alls 94,2 fm., þar af 3,5 fm. geymsla á verönd framan við húsið.
Raðhúsið var steypt árið 1981 og eru alls 4 íbúðir í raðhúsalengjunni.
Leigulóð eignarinnar er 350 fm. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi, tvö herbergi, hol og þvottahús. Gengið inn í flísalagða
forstofu. Skápur í forstofu.
Rúmgott
þvottahús við forstofu.
Úr forstofu er gengið inn í flísalagðan
gang/hol.
Tvö dúklögð
herbergi, bæði með skápum.
Eldhús er flísalagt. Upprunaleg viðarinnrétting og ljós borðplata. Flísar á milli borðplötu og efri skápa.
Parketlögð
stofa með útgangi í garð suðvestan við húsið.
Á
baðherbergi er gólf og veggur við baðkar flísalagt. Innrétting við vask.
Geymsla og sorpgeymsla á verönd fyrir framan hús.
Pallur í garði suðvestan við hús.
Móða á milli glerja og ein rúða brotin.
Lagnir eru upprunlegar.
Í lögum um fasteignakaup er lögð áhersla á skoðunarskyldu kaupanda. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega og afla sér aðstoðar sérfræðinga við frekari skoðun sé þess þörf að þeirra mati. Sú áhætta fylgir kaupum á fasteign að ekki er hægt að átta sig á ástanda á þeim hlutum eignarinnar sem ekki sjást við venjulega skoðun svo sem fráveitu-, vatns- og miðstöðvarlögnum svo og þaki eftir atvikum.