Stafnshóll , 566 Hofsós
Tilboð
Lóð
0 herb.
178401 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
65.210.000
Fasteignamat
25.533.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu jörðina Stafnshól í Deildardal í Skagafirði.
Jörðin er staðsett við mynni Deildardals og er talin vera um 440 ha. 
Bærinn stendur norðvestan í svonefndri Stafnshólsöxl.

Staðsetning jarðarinnar er einstök og stórkostlegt útsýni er frá jörðinni yfir eyjar Skagafjarðar. 


Stafnshóll á land frá Deildardalsá á fjall upp milli landa Skuggabjarga í Deildardal og Tumabrekku í Óslandshlíð. Að vestan á jörðin land að Gröf á Höfðaströnd. Töluvert af landi jarðarinnar er fjalllendi. Landið ofan við merkin að vestan er að mestu lyngmóar og melhólar, en einnig nokkurt graslendi. Ofan þess eru tún og mýrlendi upp í fjallshlíðna sem er fremur hallalítil neðan til og vel gróin. Að öðru leyti er landið að stórum hluta lyng og hrísmóar. Hálfur Hrappadalur tilheyrir jörðinni, móts við Skuggabjörg.
Á jörðinni standa íbúðarhús og útihús sem þarfnast verulegs viðhalds. Þá er ekki lagt heitt vatn og leggja þarf nýtt kalt vatn. 

Vegalengd í Hofsós er um 6 km. og á Sauðárkrók um 35 km. 

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.