Fasteigansala Sauðárkróks býður til sölu þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á neðstu hæð í þríbýlishúsinu við Lindargötu 5, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarleiguréttindum.
Íbúðin er skráð 68,8 fm. og leigulóðin er alls 319 fm. Íbúðin skiptist í tvö herbergi, baðherbergi, eldhús, búr, stofu og forstofu. Komið er í flísalagða
forstofu.
Frá forstofu er komið í parketlagða
stofu og eldhús.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með grárri borðplötu.
Við eldhús er
búr, þar er þvottavélatengi og vaskur.
Stofa er parketlögð.
Herbergi eru bæði parketlögð og skápar eru í öðru þeirra.
Baðherbergi er rúmgott. Þar er hvít innrétting, baðkar og sturtua. Dúkur á gólfi.
Íbúðin var öll endurnýjuð árin 1997-1998.Ljósleiðari er í íbúðinni.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali