Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Bankastræti 7, Skagaströnd ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt risi og byggt úr timbri, alls 129,8 fm.
Leigulóð hússins er 1000 fm. Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, forstofu og ris.Frá Bankastræti er komið inn í húsið um
þvottahús.
Forstofa hússins er hinum megin við húsið.
Forstofa er flísalögð.
Frá forstofu er komið í dúklagða
stofu.
Hringstigi í
ris frá stofu, en þar er eitt herbergi, hol/stigapallur og geymsla undir súð.
Í
eldhúsi er hvít innrétting og dúkur á gólfi. Innrétting er léleg.
Inn af eldhúsi er
þvottahúsið, málað gólf og vaskaborð.
Herbergisgangur er dúklagður og þar við eru þrjú herbergi og baðherbergi.
Herbergi eru öll dúklögð og skápur í einu þeirra.
Á
baðherbergi eru flísar á gólfi en flísar á veggjum hafa að öllum líkindum verðir fjarlægðar. Innrétting er við vask. Baðkar og handklæðaofn.
Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist hina seldu eign í skuldaskilum og seljandi getur því ekki uppfyllt upplýsingarskyldu sína. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem kemur fram í opinberum gögnum, því leggur seljandi ríka áherslu á það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árvekni við skoðun og leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. Seljandi og fasteignasali hafa veitt kaupanda allan nauðsynlegan aðgang til að meta og skoða hinu seldu eign. Eignin selst í því ástandi sem hún var í við nákvæma skoðun kaupanda og hann sættir sig við að öllu leyti.
Eignin þarfnast mikils viðhalds.Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali