Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Raftahlíð 48, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum og hlutdeild í sameign.
Vel skipulagt og mikið endurnýjað sjö herbergja endaraðhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr 233,2 fm.
Íbúðin er 208,5 fm. og bílskúrinn 24,7 fm. Húsið var byggt árið 1981.
Leigulóð hússins er alls 376 fm.Eigendur skoða skipti á jörð í Skagafirði.Fasteignin skiptist í fimm herbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, tvær forstofur, þvottahús, gluggalaust herbergi og bílskúr. Á
efri hæð er
forstofa, eldhús, stofa, baðherbergi, svefnherbergi og bílskúr.
Komið er í flísalagða
forstofu þar sem er fataskápur. Útidyrahurð hefur verið endurnýjuð.
Stofa og eldhús er í sama rými og parketlagt. Gluggar í stofu snúa í vestur.
Eldhús er parketlagt, innrétting er frá Trésmiðjunni Borg, tveir bakaraofnar og annar líka örbylgjuofn, span helluborð og innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, walk in sturtu, góðum skápum og handklæðaofni. Hiti í gólfi. Baðherbergi var endurnýjað 2016.
Svefnherbergi er rúmgott. Parket á gólfi og mikið skápapláss. Hurð út á svalir frá herberginu.
Í
holi er parket á gólfi. Við
stiga er opið rými þar sem áður var herbergi. Stigi til neðri hæðar er teppalagður.
Frá holi er innangengt í
bílskúr sem er flísalagður og með rafdrifinni bílskúrshurð. Bílskúrshurð hefur verið endurnýjuð.
Á
neðri hæð eru
fjögur herbergi, eitt stórt gluggalaust herbergi, baðherbergi, rúmgott þvottahús og forstofa með hurð út í garð.
Herbergi hæðarinnar eru öll parketlögð fyrir utan eitt sem er flísalagt og með gólfhita. Fataskápar eru í tveimur þeirra.
Stórt flísalagt
herbergi með gólfhita en herbergi er nýtt sem leikherbergi. Herbergið er gluggalaust.
Gangur er parketlagður.
Þvottahús er stórt , þar er tengi er fyrir tvær þvottavélar og þurrkara. Gólf er málað og þar er lagnagrind hússins. Þvottahús er gluggalaust.
Baðherbergi er dúklagt, sturta, vaskur og salerni.
Flísalögð
forstofa er á hæðinni með hurð út á sólpall í garði. Hiti í gólfi.
Í garði er um 70 fm. afgirtur
sólpallur með
heitum potti. Lýsing er í skjólveggjum. Gras er á hluta garðs.
Bílaplan er steypt og með snjóbræðslu. Hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir.
Fasteignin hefur verið mikið endurnýjuð og vel við haldið.
Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar frá stút og út í brunn og settur nýr brunnur.
Lagnagrind hefur verið endurnýjuð.
Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð og komið þriggja fasa rafmagn.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali