Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Raftahlíð 2, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum og hlutdeild í sameign.
Mikið endurnýjað, bjart og vel skipulagt fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð ásamt bílskúr, alls 148,6 fm.
Samkvæmt skráningu hjá HMS er íbúðin skráð 120,9 fm. og bílskúr 27,7 fm. Húsið var byggt árið 1977.
Leigulóð hússins er 370 fm. og stórkostlegt útsýni er frá eigninni.
Árið 2021 var íbúðin öll endurnýjuð að innan, þ.e. lagnir, innréttingar, gólfefni, loftaklæðning og innihurðir og er öll hin glæsilegasta.
Þá var jafnframt settur gluggi á baðherbergi sem er á stafni hússins.
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðarinnar nema herbergjum. Nýjir ofnar eru til og fylgja.Fasteignin skiptist í þrjú herbergi, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, forstofu, geymslu og bílskúr. Komið er í parketlagða
forstofu.
Það við er parketlagt
herbergi og
geymsla.
Innangengt er á milli íbúðar og bílskúrs frá forstofu.
Stofa, hol og eldhús er allt parketlagt. Rýmið er einkar bjart en stórir gluggar snúa í austur með miklu útsýni. Svalahurð er frá stofu út í garð að austan.
Í
eldhúsi er grá innrétting með ljósri borðplötu úr steini. Mikið skápapláss er í innréttingunni.
Baðherbergi er parketlagt að hluta en sturta er flísalögð. Fibo plötur eru á veggjum að hluta. Svört innrétting við vask. Upphengt salerni.
Rúmgóð parketlögð
herbergi eru við herbergisgang.
Í bílskúr er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Milliloft er yfir hluta bílskúrs. Gryfja er í bílskúr.
Þak hússins var málað 2024.
Bílaplan er að hluta steypt og hluta malarborið.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali