Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Nestún 24A, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Glæsilegt, bjart og vel skipulagt parhús á einni hæð alls 178,9 fm., þar af 45,1 fm. bílskúr.
K-Tak ehf. er byggingaraðili hússins en um er að ræða rótgróið byggingarfyrirtæki á Sauðárkróki.
Vandað hefur verið til verka við byggingu parhússins, þ.e. efnisval, vinnubrögð og frágang, og er það allt hið glæsilegasta.
Stórkostlegt útsýni er frá eigninni.Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, þvottahús, forstofu og bílskúr.Komið er í parketlagða
forstofu.
Við forstofu eru
tvö parketlögð herbergi og skápar í þeim.
Í
eldhúsi er hvít innrétting og eyja frá IKEA og gott skápapláss. Í hlut kaupanda kemur að velja harðplast-borðplötu, bakaraofna og helluborð frá AEG eða sambærilegt. Kjósi kaupandi að taka dýrari borðplötu eða tæki greiðir hann mismuninn. Ískápur og uppþvottavél fylgja ekki.
Rúmgóð, parketlögð
stofa er í suðausturhorni hússins. Svalahurð út á pall frá stofu. Gluggar eru í suður og austur.
Herbergi og baðherbergi eru við
gang frá eldhúsi og að þvottahúsi. Á gangi er hægt að koma fyrir skápum eða fatahengi.
Herbergi er parketlagt og með góðum skápum.
Á
baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum. Baðherbergi er rúmgott og vel skipulagt, með bæði walk in sturtu og baðkari. Blöndunartæki eru frá Grohe og eru innbyggð í sturtu og við baðkar. Innrétting er hvít og frá Fríform. Spegill með LED lýsingu.
Í
þvottahúsi eru gráar flísar á gólfi og hvít innrétting frá IKEA fyrir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss. Vaskur í innréttingu. Frá þvottahúsi er gengið út á pall að austan.
Bílskúr er með epoxi á gólfi.
PLEJD snjalllýsing í öllum rýmum nema bílskúr.
Gólfhiti er í öllu húsinu og er hitastilling í hverju rými.
Neysluvatn - varmaskiptir (upphitað kalt vatn).
Hljóðvistardúkur frá ENSO er í öllum rýmum nema bílskúr.
Innihurðir eru frá Byko.
Tengi er fyrir heitan pott á palli að austan.
Vélrænt útsog í þvottahúsi, baðherbergi og alrými.
Bílaplan og stétt meðfram og bakvið húsið er steypt og með snjóbræðslu.
Ruslatunnuskýli fyrir 4 tunnur er á lóðinni.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali