Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Oddagötu 1, Skagaströnd ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Um er að ræða sex herbergja steypt einbýlishús á pöllum alls 155,3 fm.
Leigulóð hússins er 900 fm.
Stutt er í ýmsa þjónustu eins og grunnskóla, leiksskóla, verslun o.þ.h.Fasteignin skiptist í fimm herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, geymslur og forstofu.Komið er í flísalagða
forstofu á miðhæð hússins.
Þar er jafnframt
hol, stofa og eldhús sem er parketlagt.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með grárri borðplötu, Electrolux bakaraofn, AEG helluborð.
Stofa er rúmgóð og með gluggum til suður og vesturs.
Frá
holi er gengið upp nokkrar tröppur og komið þar á herbergisgang.
Við
herbergisgang eru þrjú
svefnherbergi og
baðherbergi.
Tvö herbergjanna eru parketlögð og
eitt dúklagt og með skápum. Rúða í einu herbergi brotin.
Baðherbergi er flísalagt, hvít innrétting með ljósri borðplötu, handklæðaofn og baðkar.
Á
neðstu hæðinni er
þvottahús og
geymsla með máluðum gólfum og
tvö herbergi sem bæði eru parketlögð.
Húsið hefur verið klætt að utan og var það einangrað á sama tíma.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali