Geitagerði 2 - íb. 202 , 551 Sauðárkrókur
16.500.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
48 m2
16.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2003
Brunabótamat
23.400.000
Fasteignamat
13.950.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á efri hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsinu við Geitagerði 2, Hólum í Hjaltadal, Skagafirði ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð (merkt 202) með sérinngangi í fjölbýlishúsi, steyptu árið 2003. Íbúðin er 48,3 fm.
Í fjölbýlishúsinu eru alls 8 íbúðir.
Leigulóð hússins alls er 1222 fm.
Gott útsýni er frá íbúðinni. 


Íbúðin skiptist í eitt svefnherbergi, eldhús og stofu í sama rými, baðherbergi, forstofu, þvottahús og geymslu.
Forstofa
er með dúk á gólfi og fatahengi.
Við forstofu er þvottahús með dúk á gólfi og vaskaborði. Inn af því er geymsla með hillum á veggjum.
Svefnherbergi er dúklagt og með fataskáp.
Baðherbergi er dúklagt, upphengt salerni og sturta.
Eldhús og stofa í sama rými, dúkur á gólfi. Upprunaleg eldhúsinnréttingu með bakaraofni, helluborði, viftu og tengi fyrir ísskáp. Úr stofu er útgengi á vestursvalir. 
Bílastæði er norðan við húsið. 
Sérinngangur til íbúðarinnar er á austurhlið hússins.

Fasteignin afhendist í núverandi ástandi. Eigandi mælir sérstaklega með því að eignin sé skoðuð með fagmönnum. 
Ekki er virkt húsfélag í húsinu. 

Hólar er byggðakjarni staðsettur í Hjaltadal í Skagafirði. Hólar eru einn sögufrægasti staður Íslands og biskupssetur um aldir. Á Hólum er leikskóli og Háskólinn á Hólum. Hólaskóli sérhæfir sig í ferðamálafræðum, hrossarækt og reiðmennsku, auk fiskeldis og fiskalíffræði. Fjölbreyttar gönguleiðir eru á Hólum og í nágrenni.
Frá Hólum er stutt á Hofsós og Sauðárkrók.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.