Opið hús: 02. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Birkimelur 8A , 560 Varmahlíð. Eignin verður sýnd mánudaginn 2. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Birkimel 8A, Varmahlíð ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Snyrtileg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í steyptu parhúsi á einni hæð alls 87,2 fm.
Leigulóð hússins alls er 725 fm.
Fasteignin skiptist í tvö herbergi, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, forstofu og þvottahús/geymslu. Komið er í flísalagða
forstofu þar sem er fataskápur.
Við forstofu er
þvottahús með máluð gólfi, vaskaborði og góðum geymsluhillum.
Eldhús og stofa er saman í opnu og góðu rými.
Eldhús er flísalagt og þar er viðarinnrétting með ljósri borðplötu. Siemens bakaraofn og Bosch helluboð.
Stofa er rúmgóð og með parketi á gólfi. Frá stofu er svalahurð út í garð að vestan þar sem er pallur.
Herbergisgangur er parketlagður.
Herbergi eru bæði parketlögð og með skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Hvít innrétting við vask, walk in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali