Fasteignin Lindargata 5B, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Skráð stærð íbúðarhússins skv. HMS er 71,7 fm.
Leigulóð hússins er 115 fm.Fasteignin skiptist í tvö herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og forstofu. Komið er í
forstofu þar sem er steypt gólf.
Frá forstofu er komið á parketlagðan gang. Skápar eru við ganginn.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með rauðri borðplötu. Gömul eldavél er í eldhúsinu, helluborð virkar en ekki er vitað um ofninn.
Stofa er panilklædd og er í eldri hluta hússins sem byggður var árið 1938.
Tvö
herbergi, minna herbergið er parketlagt og hitt er dúklagt.
Á
baðherbergi vantar sturtu eða kar. Nýr veggur er á milli baðherbergis og herbergis, veggfóður er á hluta veggjar.
Nýrri hluti hússins er byggður 1970, en skráð hjá HMS sem byggt 1954
Þak og timbur á nýrri hluta hússins var endurnýjað árið 2024. Einangrun hefur ekki verið endurnýjuð og kann að þarfnast endurnýjunar.
Leki er í forstofu.
Þakjárn á eldri hluta hússins (stofu) var endurnýjað fyrir um 10 árum.
Samkvæmt yfirlýsingu dags. 13.10.2015 er óheimilt að leggja ökutækjum eða hefta umferð um sundið milli Lindargötu nr. 5 og nr. 3. Í þessu felst að mögulega er á öllum tímum sólarhrings að fara með ökutæki um sundið vegna nauðsynlegta flutninga til og frá Lindargötu 5b. en óheimilt er að leggja bifreiðum í sundinu við húsin þar fyrir ofan. Bílastæði er sameiginlegt með Borgarey, Lindargötu 5.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala