Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Austurgötu 5, Hofsósi ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Mikið uppgerð fjögurra herbergja parhús á einni hæð ásamt bílskúr, alls 140,4 fm.
Skráð stærð íbúðarinnar er 104,4 fm. og bílskúrs 36 fm.
Leigulóð parhússins alls er 980 fm.
Íbúðin skipist í þrjú herbergi, eldhús og stofu í sama rými, baðherbergi, þvottahús, forstofu og geymslu.
Forstofa er flísalögð sem og gangur. Stórir skápar við gang.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með ljósri borðplötu og tveimur ofnum.
Stofa og eldhús er í sama rými sem er parketlagt. Hurð er frá stofu út á pall í garði sunnan við húsið. Á palli er heitur pottur.
Herbergi eru öll parketlögð, skápur í einu herbergi.
Baðherbergi er flísum á gólfi og hluta veggja. Walk in sturta, speglaskápur ofan við vask og handklæðaofn.
Þvottahús er við forstofu, þar er vaskur.
Geymsla er innst í húsinu, parketlögð og rúmgóð.
Gólfhiti er í stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahús og gangi.
Bílskúr er frágenginn og með nýrri hurð. Í bílskúr er vaskur, heitt og kalt vatn ásamt vinnuborði. Einnig er krani á bílskúrnum að utan. Niðurfall er fyrir utan bílskúr.
Helstu endurbætur og framkvæmdir:
2016 - frárennslislangir endurnýjaðar.
2017 - öll gólfefni, eldhúsinnrétting, fataskápar, rafmagnstæki í eldhúsi og hreinlætistæki á baðherbergi endurnýjað.
2023 - húsið og bílskúr málað að utan.
Þakjárn á íbúðarhúsinu hefur verið endurnýjað ásamt þakrennum.
Lagnagrind hefur verið endurnýjuð.
Búið er að taka inn þriggja fasa rafmagn og skipta um allt í rafmagnstöflu.
Hitaveita var lögð í Hofsós 2008 og þá var skipt um miðstöðvarlagnir.
Bílaplan er malbikað og þar við er upphituð gangstétt.
Í garði er góður pallur.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali