Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Hjá Ernu hárgreiðslustofu ehf. á Sauðárkróki. Með í kaupunum fylgir fasteignin Skagfirðingabraut 6 ásamt öllum innréttingum og búnaði.Hjá Ernu hárgreiðslustofa er staðsett við Skagfirðingabraut 6 í miðbæ Sauðárkróks og hefur það rekið hárgreiðslustofu og verslun til fjölda ára. Félagið á húsnæðið Skagfirðingabraut 6 sem er 90,1 fm. steypt verslunarhúsnæði á neðri hæð að norðan. Húsnæðið er rúmgott og nýtist vel til núverandi starfsemi en býður þó upp á mjög mikla möguleika. Húsnæðið er huggulega innréttað og skiptist í afgreiðslu, sal, snyrtingu og kaffistofu/eldhús þar sem jafnframt er þvottaaðstaða. Tveir sérinngangar eru í húsnæðið, annar um afgreiðlsu og hinn um eldhús/kaffistofu.
Húsinu hefur verið mjög vel við haldið og hefur verið mikið endurnýjað, m.a. búið er að einangra, múra og mála húsið að utan og endurnýja útihurðir og gler og glerlista í gluggum á norður- og austurhlið. Þegar það var múrað var notað Í-múrkerfi, þ.e. einangrað að utan og múrað sem og þakkantur endurnýjaður. Að innan hefur eignin mikið endurnýjuð m.a. árið 2019/2020 var skipt um gólfefni, loftaklæðningu og raflagnir að hluta. Salerni var endurnýjað 2022. Á stofunni eru fimm klippistólar.
Eignin fæst afhent 1. janúar 2027.
Í lögum um fasteignakaup er lögð áhersla á skoðunarskyldu kaupanda. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega og afla sér aðstoðar sérfræðinga við frekari skoðun sé þess þörf að þeirra mati. Sú áhætta fylgir kaupum á fasteignum að ekki er hægt að átta sig á ástandi á þeim hlutum eignarinnar sem ekki sjást við venjulega skoðun svo sem fráveitu-, vatns- og miðstöðvarlögnum svo og þaki eftir atvikum.