Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu tveggja herbergja íbúð á neðri hæð í fasteigninni við Knarrarstíg 2, Sauðárkróki.
Húsið var steypt árið 1947. Íbúðin er alls 74 m2.Íbúðin skiptist í svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi og geymslu.Gengið inn um
sérinngang á suðurstafni hússins í
forstofu/þvottahús.Hol með parketi.
Svefnherbergi með parketi og fataskápum.
Geymsla með hillum er við holið.
Eldhús er parketlagt með eldri innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt. Þar er upphengt salerni, handklæðaofn, hvít innrétting og sturta. Búið er að steypa nýtt gólf á baðherbergi, endurnýja neysluvatn og skólp.
Lítil
geymsla er undir stiga sem liggur á efri hæð.
Gluggar voru málaðir að utan síðasta sumar.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala