Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina á efri hæð við Sæmundargötu 9, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Þriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr alls 148 fm. og var íbúðarhúsið byggt árið 1925 en bílskúr 1963.
Íbúð á hæð er skráð 82,3 fm. og bílskúr skráður er 65,7 fm.
Bílskúr var stækkaður árið 2009.
Leigulóð hússins alls er 486 fm.Íbúðin skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, tvær geymslur, tvö baðherbergi (sturtu og vask í öðru og salerni og vask í hinu) og hol.Komið er á flísalagðan
gang um sameiginlegan inngang.
Frá ganginum er gengið upp
stiga til íbúðarinnar.
Neðst við stigann er
baðherbergi með sturtu og vask. Flísar á gólfi og innrétting við vask. Handklæðaofn.
Frá stiga er komið á parketlagðan
stigapall.
Eldhús er dúklagt og með hvítri innréttingu. Inn af eldhúsi er er geymsla/búr.
Stofa er parketlögð.
Parket er á báðum
herbergjum.
Á hæðinni er
baðherbergi með salerni og vask.
Geymsla er við gang.
Bílskúr er mjög rúmgóður og frágenginn. Þak hefur nýlega verið endurnýjað.
Geymsluloft er yfir hluta íbúðarinnar.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala