Raftahlíð 78, 550 Sauðárkrókur
74.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
5 herb.
148 m2
74.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
71.700.000
Fasteignamat
64.450.000
Opið hús: 06. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Raftahlíð 78, 550 Sauðárkrókur. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 6. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Raftahlíð 78, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum og hlutdeild í sameign. Vel skipulögð fimm herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð ásamt bílskúr, alls 148,6 fm.
Samkvæmt skráningu hjá HMS er íbúðin skráð 120,9 fm. og bílskúr 27,7 fm. Húsið var byggt árið 1976. Leigulóð hússins er 370 fm.


Um er að ræða rúmgóða og vel skiplagða eign sem skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, forstofu og bílskúr.
Gengið er inn í flísalagða forstofu en þaðan er innangengt í bílskúr. Við forstofu er parketlagt herbergi.
Í eldhúsi er Ikeainnrétting með ljósri borðplötu.
Stofa er parketlögð. Svalahurð er frá stofu út í garð.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Hiti er í gólfi inná baðherbergi.
Svefnherbergin eru öll parketlögð og eru fataskápar í einu þeirra.
Í bílskúr er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Milliloft er yfir hluta bílskúrs. Lítill geymslukjallari er í bílskúr.
Garður snýr í austur og er afgirtur og með palli. Pallur var smíðaður árið 2013.

Viðarparket er á herbergjum, stofu, eldhúsi og holi. 

Íbúðin var mikið endurnýjuð árin 2012/2013 en þá var eldhús og baðherbergi endurnýjað, sett var ný loftaklæðning, sett ný einangrun í loft og skipt var um neysluvatnslagnir. 
Rafmagn var endurnýjað í eldhúsi og baðherbergi 2013.
Skipt var um gler árið 2018. 
Bílskúrshurð var endurnýjuð árið 2018 - er með rafmagnsopnara. 
Hiti er í bílaplani og stétt framan við hús. 

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir, löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.