Skagfirðingabraut 37, 550 Sauðárkrókur
64.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
6 herb.
203 m2
64.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1959
Brunabótamat
79.600.000
Fasteignamat
63.050.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Skagfirðingabraut 37 ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarleiguréttindum. Sex herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr, alls 203,8 fm. Húsið var byggt árið 1959. Neðsta hæð hússins er steypt og efri hæð er hlaðin.
Íbúðarhúsið er skráð alls 157,5 fm. og bílskúrinn 46,3 fm.
Leigulóð hússins er 640 fm.


Íbúðin er á mið- og efstu hæð í tvíbýlishúsi.

Fasteignin skiptist í fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, sjónvarpshol, forstofu og stigahús.
Gengið er inn um sérinngang á norðurhlið hússins þar sem komið er inn í flísalagða forstofu. Parketlagður stigi er upp á stigapall á miðhæð.
Á miðhæð er komið inn í rúmgott opið rými. Þar er útgengi út á suðursvalir. Á hæðinni er þvottahús, eldhús, stofa, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Eldhús er með dúkflísum á gólfi og upprunalegri innréttingu.
Rúmgóð stofa með parketi.
Baðherbergi er upprunalegt. 
Tvö svefnherbergi, annað með góðum fataskápum.
Viðarstigi er upp á efstu hæð þar sem er rúmgott fjölskyldu/sjónvarpsrými og tvö svefnherbergi.

Þak á bílskúr hefur var endurnýjað árið 2015 en eftir er að klæða það að innan. Innkeyrsla að bílskúr tilheyrir eigninni.

Ljós, tenglar og rofar var endurnýjað á efstu hæð árið 2021.
Skipt var um járn og einangrun á þaki sem er yfir hluta miðhæðar árið 2015
Rafmagn var endurnýjað í íbúðinni í kring um árið 2010.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.